Il Pedofilo
30.5.2009 | 13:32
Það er ausðéð að frjálshyggjan er gengin töluvert of langt á Ítalíu.
Ég hef ekki verið mikill aðdáandi Berlusconis og nú er alls ekki tími fyrir til að gerast slíkur.
Að mínu mati er þetta niðurlæging fyrir skattgreiðendur Ítalíu.
Við verðum að gera okkur grein fyrir því að fólk allstaðar í heiminum ýtist frá stjórnmálum og hættir að hafa áhrif á samfélag sitt, og að mínu mati er það vegna þess að fólkið veit að stjónmál eru spillt , fólkið veit að stjórnmál hafa þróast í viðskipti og upprunalegur tilgangur ríkisstjórnar og alþingis er glataður.
Almennir borgarar eru meðvitaðir um spillingu í sinni stjórnsýslu, og þá er kominn tími á annarskonar vinnubrögð. Það er ekki hægt að taka á nýju og erfiðu efnahagsumhverfi með gömlum vinnubrögðum og því er það undir ábyrgð stjórnmála manna að endurnýja og mæta kröfunum.
Með þessum vinnubrögðum Berlusconis sé ég enga endurnýjun og hreint sé ég ekki hvernig hann ætlar að taka á vanda Ítalíu.
Berlusconi á að fara í meðferð, og leyfa hæfum manni að taka við af sér.
|
Reynir að stöðva myndbirtingar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lærðu að skammast þín Þorgerður
14.4.2009 | 18:06
|
Aldrei heyrt alvarlegri ásakanir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Margt til í Kalla...
14.2.2009 | 00:09
... Var að lesa kommúnistaávarpið
Á þessum dögum er mjög heppilegt að lesa kommúnistaávarpið.
Fyrir mér er það ekki aðeins áróðursrit, heldur forkunar gott spádómsrit í þokkabót.
Nefna má dæmi...
1. - ,,Auðmaðurinn skiptar ekki eingöngu persónulega stöðu í framleiðslunni. Hann skipar einnig þjóðfélagslega stöðu. Auðmagn er til orðið í samfélagi og fær ekki að þróast nema fyrir samvirkar athafnir margra manna og í rauninni ekki nema fyrir samvirkar athafnir þjóðfélagsins. Auðmagn er ekki einstaklingsvald heldur þjóðfélagsvald. "
2. -,,Framleiðslu og viðskiptahættir hiðs borgarlega þjóðfélags, sem hefur töfrað fram svo risavaxna framleiðslu líkist nú þeim galdameistara, er að lokum fær ekki lengur ráðiðvið anda undirhjúpanna er hann hefur vakið upp.
Er þetta ekki nákvæmlega það sem gerðist á þessari litlu eyju ?
Það er margt til í skrifum Karl Marx, en hann er í mínum augum eins konar Nostradamus 19. aldar.
Þetta merka rit er gefið út 1848, og nú 161 árum síðar líðum við fyrir afleiðingar frjálshyggjunar, sem hann svo skemmtilega varaði okkur við.
Að mínu mati er brýnt að engum verði mismunað í komandi stjórnmálastefnum.
En að sjálfsögðu eru sumt af kenningum Kalla Marx ekki lengur gildandi, og margt hefur breyst á þessum 161 árum, en að mínu mati er umdeilt, og jafnvel rangt að kalla núlifandi tíma ,, þróun.''
Það er slæm þróun þegar stjórn samfélaga, og reglugerð fólskins er einhliða byggð á peningum og sérhagsmunum.
Frekar myndi ég orða þetta ,,kúgun."
Því stéttaskipting er og mun alltaf verða á meðan græðgi á sér stað.
Og einnig hefur sagan sýnt að hvorki Frjálshyggja, né Kommúnismi fylli undir jafnrétti kvenna.
Kalli greyið hélt því miður að kúgun kvenna myndi sjálfkrafa lagast þegar stéttaskiptingu hafði verið útrýmt. Það reyndist ekki svo.
Ég tel að nú sé tími fyrr aðgerðir á samfélagslegum forsendu, og ég býð spenntur eftir að lesa Das Kapital.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Jæja...
12.2.2009 | 22:26
Nú er maður búinn að fá sér sess í blogginu.
Ég er nú nýbyrjaður og vona að hér rísi fyrirmyndar bloggsíða.
,, Bylting er tilgangslaus án vopna.'' - sagði Che Guevara, en á þeim tíma voru menn ekki sestir fyrir framan tölvuna.
Þess vegna er gott ráð að kíkja í skotleik, eða skrifa heiftarlegar og vafasamar áróðursræður á netinu.
Bless í bili
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

